Ég er
alveg ótrúleg, ég var að toga upp hlerann inn í herbergi til
að fá sól inn og viti menn ég þurfti náttúrulega að toga of
fast þannig að hlerinn fór of langt inn og ég gat ekki lokað
hleranum aftur....auli.....
en ég reyndi að laga þetta og
ekkert gekk.....
þetta
var fyrir um ca einum og hálfum mánuði síðan, þannig að
hlerinn er búin að vera fastur og ég hef vaknað við að fá
sólina inn til mín kl:5-6 um morguninn og er ekkert svaka
ánægð með það.
En
hún Ragga mín ákvað að tala við húsvörðinn okkar og ath hvort
að hann gæti lagað þetta fyrir okkur, en viti menn hann gat
það ekki sagði að það þyrfti örugglega að fá eitthverja menn
til að laga þetta. shit kostar örugglega
helling...
Svo
kom hann Þórjón heim og hann kíkti ekki á hleran svo kom hann
Símon í heimsókn og við gleymdum að láta hann kíkja á hleran
.....ótrúlegar......
Svo
var ég að lesa úti á svölum áðan fyrir listasögupróf og eins
og vanalega fór ég að hugsa um eitthvað annað en það sem að
ég var að lesa, ég var að spá í að reyna einu sinni en að
laga heilvítis hlerann......ég náði mér í stól og
byrjaði að laga hlerann, þetta var nú meira barslið en ég
fattaði hvað þurfti að gera og viti menn ég náði að laga
heilv.... hlerann, sem sagt ég er
bestust.